Það var ánægjulegt hversu margir mættu á kynningu sem var haldin fyrir sjúkra - og iðjuþjálfa á aflbúnaði á handknúna hjólastóla í Stuðlabergi heilbrigðistækni á Stórhöfðanum í lok mars.
Systurfyrirtækin Stuðlaberg heilbrigðistækni og Eirberg tóku þátt í Degi sjúkraþjálfunar sem fór fram í Smárabíói föstudaginn 10. mars.
Á dögunum heimsóttu Kristinn, Magnea og Úlfhildur frá Stuðlabergi Heilbrigðistækni norska fyrirtækið Topro sem staðsett er í bænum Gjövik skammt frá Osló.
Stóma- og þvagleggjaþjónustan er ein sú mikilvægasta sem Stuðlaberg veitir, enda byggir hún á áratuga reynslu. Lögð er áhersla á afslappað umhverfi þar sem trúnaðar er gætt. Afgreiðsla og fræðsla er í höndum Katrínar og Úlfhildar sem leggja sig ætíð fram við að veita faglega en jafnframt persónulega þjónustu við val á viðeigandi vörum. Vörurnar eru í samningi við Sjúkratryggingar Íslands.
Smekklegt og þægilegt baðhandfang frá þýska fyrirtækinu Rehastage sem veitir góðan og öruggan stuðning þegar stigið er ofan í og upp úr baðkari. Hugo er með sveigjanlegar festingar og með gúmmí á þeim innanverðum svo baðkarið rispist ekki.
Afleiðingar falls geta verið alvarlegar og veigra því margir sér við að nota stigann, sérstaklega ef engin hjálp er nærri. Um þriðjungur fólks eldra en 65 ára dettur einu sinni á ári, og tíðni bylta tvöfaldast á fimm ára fresti eftir þann aldur.
Þrír hressir iðjuþjálfanemar komu í vettvangsheimsókn til okkar í Stuðlabergi heilbrigðistækni í byrjun nóvember til þess að kynna sér starf iðjuþjálfans Jóhönnu Ingólfsdóttur.
Kynning á Panthera hjólastólum verður haldin þriðjudaginn 3. maí kl. 9:00-12:00 fyrir sjúkra- og iðjuþjálfa og aðra sérfræðinga í velferðartækni í sýningarsal Stuðlabergs heilbrigðistækni að Stórhöfða 25, 3. hæð.
Við þökkum kærlega fyrir góðan, fróðlegan og skemmtilegan dag. Hér látum við myndir tala sínu máli ;)
Þriðjudaginn 8.mars bjóðum við á kynningu og fræðslu á rafknúnum hjólastólum frá Quantum Rehab og TA-Service