Frí heimsending þegar verslað er yfir 10.000 kr. eða meira, allt að 20 kg.
Menu
Innkaupakarfa
Engar vörur í körfu.

Um okkur - About in English

Stuðlaberg heilbrigðistækni ehf. - vöruúrval og þjónusta

Stuðlaberg heilbrigðistækni ehf. er framsækið innflutnings- og þjónustufyrirtæki sem byggir á traustum grunni og áratuga faglegri reynslu en starfsemin tilheyrði áður Heilbrigðissviði Eirbergs. Stoðsvið félaganna og yfirstjórn eru sameiginleg. Stuðlaberg býður fagaðilum og almenningi vandaðar vörur og faglega ráðgjöf. Þar starfa hjúkrunarfræðingar, iðjuþjálfi, sjúkraþjálfari, þroskaþjálfi og aðrir sérfræðingar í velferðartækni. Sjá lista yfir sérfræðinga í velferðartækni og búnaði hér neðar á síðunni.

Hjúkrunar- og dagrekstrar­vörur

Afgreiðslan Stórhöfða 25 er opin klukkan 9:00 -12:00 og 12:30 - 16:00 virka daga.

Söluráðgjöf Stuðlabergs á sviði stóma- og þvagleggja er sú viðamesta hér á landi og er í höndum hjúkrunarfræðinga sem hlotið hafa sérþjálfun framleiðenda. Veitt er persónuleg aðstoð við að finna hentugar vörur sem eru í rammasamningum Sjúkratrygginga Íslands. Vörupantanir má senda á hjukrun@stb.is eða hringja í síma 569-3198. Vinsamlegast gefðu upp nafn þess sem pantað er fyrir, kennitölu, hvaða vöru verið er að panta og magn. Fyllsta trúnaðar er ætíð gætt. Pantanir eru afgreiddar eins fljótt og auðið er. Nánari upplýsingar um þjónustuna má finna hér.

Almennar fyrirspurnir og pantanir: stb@stb.is - 569-3180

Upplýsingavefur Stuðlabergs býður fjölbreytt vöruval sem finna má undir vöruflokkum og undir vöruheitum framleiðenda. Þar er unnt að afla sér fræðslu um heilbrigðisvörur og ganga frá pöntunum. Einnig má nota leitargluggann efst til að finna vörur.

Verkstæði Eirbergs og Stuðlabergs Stórhöfða 25

Gengið er inn um aðalinngang og niður eina hæð eða með lyftu. Næg bílastæð, ásamt stæði fyrir hreyfihamlaða. Hægt er að senda þjónustubeiðnir á hjalp@stb.is - Sími 569-3190. Þjónustusamningur er við Sjúkratryggingar Íslands.

Vöruhús Eirbergs og Stuðlabergs Stórhöfða 25

Vöruhús er opið kl. 8:00-17:00. Netfang: voruhus@eirberg.is - Sími: 569-3127.

Skrifstofa Eirbergs og Stuðlabergs heilbrigðistækni ehf.

Skrifstofan Stórhöfða; fjármál, bókhald, innheimtur og innflutningur, er opin kl. 8:30-16:00. Netfang skrifstofu: skrifstofa@stb.is

Sýningarsalur Stuðlabergs heilbrigðistækni ehf.

Í sýningarsal Stuðlabergs á efstu hæð að Stórhöfða 25 eru til sýnis og prófunar hin ýmsu hjálpartæki og margvíslegar vörur. Við bjóðum fagfólki og skjólstæðingum þeirra velkomið í sýningarsalinn. Vinsamlegast hafið samband við söluskrifstofu Stuðlabergs heilbrigðistækni á 2. hæð ef fá þarf faglegar upplýsingar eða fræðslu um búnað. Senda má ósk um heimsókn á netfang tiltekins starfsmanns eða á netfangið stb@stb.is

Við hvetjum viðskiptavini og gesti okkar að gera boð á undan sér svo tryggt sé að viðkomandi sérfræðingur sé til staðar þegar komið er.

Markmiðin okkar eru að

  • Auðvelda fólki daglegt líf
  • Styðja einstaklinga til sjálfshjálpar
  • Auka vinnuvernd og hagræði

Stuðlaberg og Sjúkratryggingar Íslands hafa gert með sér samninga um

  • Bað- og salernishjálpartæki
  • Barna- og hjúkrunarrúm
  • Gönguhjálpartæki
  • Fólkslyftara
  • Hjólastóla og hjálparmótora
  • Rafknúna hjólastóla
  • Viðgerðarþjónustu hjálpartækja

Stuðlaberg heilbrigðistækni er einnig með rammasamninga við Landspítala.

Sölu- og þjónusturáðgjafar Stuðlabergs heilbrigðistækni

Nafn

Starfssvið

Netfang

Beinn sími

- Elfa Björt Gylfadóttir  þroskaþjálfiSöluráðgjafi  elfa@stb.is569-3182
- Inga Margrét Friðriksdóttir  sjúkraþjálfariSöluráðgjafiinga@stb.is569-3188
- Jóhanna Ingólfsdóttir  iðjuþjálfiSöluráðgjafijohanna@stb.is 569-3186
- Katrín Klara Þorleifsdóttir  hjúkrunarfræðingurSöluráðgjafikataklara@stb.is 569-3184
- Magnea Freyja Kristjánsdóttir  verkfræðingurRekstrarstjórimagnea@stb.is 569-3189
- Magnús Einarsson  rafvirkiTæknimaðurmagnuse@eirberg.is
569-3191
- Úlfhildur Guðjónsdóttir  hjúkrunarfræðingurSöluráðgjafiulfhildur@stb.is569-3184

Sagan

Systurfélögin Eirberg ehf. og Stuðlaberg heilbrigðistækni ehf. eiga rætur að rekja til Ó. Johnson og Kaaber hf. sem stofnað var 1906 og Hjálpartækjabankans, en ÓJ&K og Össur hf. stofnuðu Eirberg í lok árs 2000 þegar Heilbrigðisvörudeild ÓJ&K og Hjálpartækjabanki Össurar runnu saman í eitt fyrirtæki sem ætlað var að sækja fram á heilbrigðissviði og útvíkka sameinaða starfsemi með auknu vöruframboði.

Heilbrigðisvörudeild ÓJ&K sérhæfði sig í sölu á ýmsum vörum til heilbrigðisstofnana, allt frá hjúkrunarvörum til sjúkrarúma og lækningatækja. Hjálpartækjabankinn var stofnaður af Sjálfsbjörgu og Rauða krossi Íslands 1975 en komst 20 árum síðar í eigu Össurar. Hjálpartækjabankinn var miðstöð hjálpartækja í landinu með göngugrindur, fólkslyftara, hjólastóla og önnur hjálpartæki.

Í upphafi árs 2018 flutti starfsemi heilbrigðissviðs Eirbergs yfir í Stuðlaberg heilbrigðistækni ehf.

About in English

Studlaberg Health Technology ehf. embodies excellence and professional service. With a steadfast commitment to upholding a legacy of quality and service, Studlaberg is a pioneering import and service company, built upon a solid foundation with decades of professional expertise, continuing the legacy of operations previously under the Health Department of Eirberg.

The sister company Eirberg ehf. boasts a rich heritage, having been established in December 2000 from the merger of ÓJ&K's Health Products Division, with origins dating back to 1906, and Hjálpartaekjabankinn, established in 1975 by the Icelandic Red Cross and Sjálfsbjörg, the national federation for the physically disabled. Eirberg is a celebrated name in Iceland, operating a popular retail store in Reykjavik, and is dedicated to improving the health and well-being of individuals through its diverse range of products and services.

Studlaberg serves both the professional sector and the wider public, offering premium products alongside expert advice. Our team comprises nurses, occupational and physical therapists, developmental therapist and other specialists in welfare technology.

Studlaberg's diverse range of products includes

  • Walking aids
  • Bath and toilet aids
  • Wheelchairs
  • Assistive motors
  • Shower and changing beds/tables
  • Modular Storage solutions
  • Nursing beds
  • Nursing tables
  • Nursing products
  • Patient lifts
  • Privacy Screens
  • Medical Packaging
  • Examination and surgical gloves
  • Small aids for daily living
  • Pressure care

Studlaberg has established numerous agreements with key healthcare institutions such as the Icelandic Health Insurance and Landspitali University Hospital, reflecting the company's commitment to providing quality healthcare products and services.

Our consultancy in ostomy and urinary catheters sets the standard in Iceland, provided by nurses who have undergone specialized training from the manufacturers. At Studlaberg, we take pride in delivering personalized support to help clients find the appropriate products that fall within the Icelandic Health Insurance agreements. We guarantee the strictest confidentiality and ensure prompt processing of orders.

In conclusion, Studlaberg Health Technology ehf. and Eirberg ehf. are distinguished entities with a shared commitment to excellence, professional service, and enhancing the well-being of individuals. Both companies boast a rich heritage and a strong foundation of professional expertise. They operate with a synergistic approach, sharing office space and support functions to streamline operations. Together, these companies represent a formidable presence in the health and medical market in Iceland, dedicated to improving the quality of life through various health-related products.