Frí heimsending þegar verslað er yfir 10.000 kr. eða meira, allt að 20 kg.
Menu
Innkaupakarfa
Engar vörur í körfu.

UM OKKUR

04 janúar, 2018

Stuðlaberg heilbrigðistækni

Stuðlaberg heilbrigðistækni ehf. er innflutnings- og þjónustufyrirtæki, byggt á faglegum grunni og áratuga reynslu. Stuðlaberg býður fagaðilum og almenningi vandaðar vörur, persónulega ráðgjöf og þjónustu, en starfsemin tilheyrði áður heilbrigðissviði Eirbergs ehf.

Hjúkrunar- og dagrekstrar­vörur

Afgreiðslan er að Stórhöfða 25 frá kl. 9:00 til 16:30 virka daga. Afgreiðsla og fræðsla er í höndum hjúkrunar­fræðinga sem hlotið hafa þjálfun til að veita persónulega og faglega þjónustu á sviði stóma- og þvagleggja. Við aðstoðum notendur að finna vörur sem henta þeim og eru í samningi Sjúkratrygginga Íslands. Vörupantanir má senda á hjukrun@stb.is eða símleiðis. Vinsamlegast gefðu upp nafn þess sem pantað er fyrir, kennitölu, hvaða vöru verið er að panta og magn. Fyllsta trúnaðar er ætíð gætt. Pantanir eru afgreiddar eins fljótt og auðið er.

Sýningarsalur Stuðlaberg heilbrigðistækni ehf.

Í sýningarsal Stuðlabergs á neðri hæð að Stórhöfða 25 eru til sýnis og prófunar hin ýmsu hjálpartæki og margvíslegar vörur. Sýningarsalurinn er opinn fagfólki og skjólstæðingum þeirra - hópar heilbrigðisstarfsfólks koma reglulega í heimsókn til fræðslu og kynninga. Æskilegt er því að gera boð á undan sér ef fá þarf faglegar upplýsingar eða fræðslu um búnað. Við bjóðum fagfólki og skjólstæðingum þeirra velkomið í sýningarsalinn. Senda má ósk um heimsókn á netfang tiltekins starfsmanns eða á netfangið stb@stb.is

Vefverslun Stuðlabergs heilbrigðistækni býður fjölbreytt úrval sem finna má undir vöruflokkum og undir vöruheitum framleiðenda. Einnig má nota leitargluggann efst til að finna vörur.

Markmiðin okkar eru að

  • Auðvelda fólki daglegt líf
  • Styðja einstaklinga til sjálfshjálpar
  • Auka vinnuvernd og hagræði

Stuðlaberg og Sjúkratryggingar Íslands hafa gert með sér samninga um

  • Barna- og hjúkrunarrúm
  • Hjólastóla og hjálparmótora
  • Gönguhjálpartæki, bað- og salernishjálpartæki
  • Viðgerðarþjónustu hjálpartækja og búnaðar