Hjúkrunarfræðingar Stuðlabergs heilbrigðistækni leggja metnað í að veita faglega ekki síður en persónulega þjónustu til einstaklinga og umönnunaraðila. Katrín Klara Þorleifsdóttir og Úlfhildur Guðjónsdóttir hjúkrunarfræðingar hafa reynslu hvor á sínu sviði, Katrín hefur áralanga reynslu á sviði stóma og þvagleggja en Úlfhildur starfaði áður í Heimaþjónustu Reykjavíkurborgar í um áratug og hefur víðtæka reynslu þaðan.
Á Stórhöfða 25 annarri hæð er gott aðgengi en þar fer afgreiðsla og þjónusta fram í sérstöku viðtalsherbergi þar sem trúnaður er tryggður. Stóma- og þvagleggjaþjónustan er opin virka daga klukkan 09:00–12:00 og 12:30–16:00. Beinn sími hjúkrunarfræðings er 569-3195. Sé hjúkrunarfræðingur upptekinn færðu samband við skiptiborð sem tekur niður skilaboð og haft verður samband innan dagsins. Einnig er hægt að senda fyrirspurnir og pantanir á hjukrun@stb.is og reynum við eftir fremsta megni að svara innan dagsins. Pantanir sem berast með tölvupósti eða símleiðis eru afgreiddar daginn eftir, hvort sem er innan höfuðborgarsvæðisins eða til flutnings á næsta pósthús til viðskiptavina sem búsettir eru á landsbyggðinni. Einnig er mögulegt að sækja pantanir í verslun Eirbergs að Stórhöfða ef þess er sérstaklega óskað.
Stuðlaberg heilbrigðistækni ehf. býður úrval leggja og stómavara sem eru í samningi við Sjúkratryggingar Íslands og gerum við okkar besta við að aðstoða notendur við að finna vöru sem hentar og er samþykkt af Sjúkratryggingum. Við hvetjum þig til að hafa samband til þess að fá upplýsingar um þá möguleika og það vöruúrval sem í boði er.
Þvagleggir skiptast í tvær gerðir, inniliggjandi- eða aftöppunarleggi. Inniliggjandi leggir eru nýttir þegar einstaklingar hafa ekki þvaglát sjálfir og allt þvag rennur út um legginn. Aftöppunarleggir eru notaðir til aftöppunar þegar einstaklingar hafa sjálfir þvaglát en þurfa að notast við legg endrum og eins hvort sem er vegna þvagtregðu eða til þess að tæma þvagblöðruna betur. Sá tími sem einstaklingar þurfa að nota þvaglegg er misjafn sumir þurfa þess til mjög skamms tíma en aðrir mun lengur og jafnvel ævilangt.
Einstaklingar sem hafa fengið tilvísun og viðeigandi kennslu hjá lækni eða á göngudeild þvagfæra á Landspítalanum geta fengið afgreidda flest allar gerðir þvagleggja sem eru samningsbundnir við Sjúkratryggingar Íslands. Stuðlaberg heilbrigðistækni er þjónustuaðili og afgreiðir aftöppunarleggi frá Coloplast og Lofric leggi frá Wellspect og fylgihluti við inniliggjandi langtíma leggi. Þvagleggir eru að fullu greiddir af Sjúkratryggingum Íslands til sjúkratryggðra einstaklinga með innkaupaheimild.
Ferlið gengur þannig fyrir sig að eftir að læknir eða hjúkrunarfræðingur sendir inn beiðni til Sjúkratrygginga um afgreiðslu á aftöppunarþvagleggjum geta einstaklingar haft samband við Stóma og þvagleggja þjónustu Stuðlabergs og fengið afgreiðslu og ráðgjöf eftir því sem hentar. Aftöppunarleggir skiptast í herra og dömuleggi og innan þess eru þó nokkrar breytur svo flestir ættu að finna legg sem þeim hentar best. Mikil vöruþróun á sér stað og því mikilvægt að fylgjast reglulega með og kanna hvort að á markaðinn hafi komið nýjungar sem gætu hentað. Algengt er að heimahjúkrun um allt land panti aftöppunarleggi og viðeigandi búnað fyrir sína skjólstæðinga.
Hér má finna fræðslu um stóma á vef Stómasamtakannna.