Frí heimsending þegar verslað er yfir 10.000 kr. eða meira, allt að 20 kg.
Menu
Innkaupakarfa
Engar vörur í körfu.

Samningsvörur

Stuðlaberg heilbrigðistækni ehf. og Sjúkratryggingar Ísland (SÍ) eru með samninga sín á milli um kaup á hjálpartækjum og heilbrigðisvörum fyrir þá sem eru sjúkratryggðir hér á landi samkvæmt lögum um sjúkratryggingar.

Að sækja um hjálpartæki

Iðjuþjálfi, sjúkraþjálfari eða læknir getur sótt um hjálpartæki. Umsókn berst til Sjúkratrygginga Íslands sem annað hvort veitir samþykki fyrir hjálpartæki eða synjun. Ef veitt er samþykki fyrir kaupum á hjálpartæki frá Stuðlabergi heilbrigðistækni ehf berst okkur sú beiðni rafrænt og við afgreiðum hana eins fljótt og auðið er. Vörur innan Reykjavíkur og nágrennis eru keyrðar út af okkur en vörur sem fara út á land eru sendar með flutningsaðila.

Stuðlaberg heilbrigðistækni efh. annast viðgerðir á þeim hjálpartækjum sem við erum með umboð fyrir. Hægt er að senda þjónustubeiðni á hjalp@stb.is. Sími: 569-3190.

Hér fyrir neðan er hægt að sjá þær vörur sem eru í samningi við SÍ

Rafknunir hjolastolar

Rafknúnir hjólastólar í samningi við Sjúkratryggingar Íslands - sjá hér.

Sjúkrarúm, fólksflutningar og fylgihlutir í samningi við Sjúkratryggingar Íslands - Sjá hér.

 

Bad_og_sal_2022

Bað- og salernishjálpartæki í samningi við Sjúkratryggingar Íslands - Sjá hér.

 

Hjólastólar og gönguhjálpartæki í samningi við Sjúkratryggingar ÍslandsSjá hér

Á vefsíðu sjukra.is má finna eftirfarandi upplýsingar

Upplýsingahefti um samninga og vörulista

Hjálpartæki | Sjúkratryggingar Íslands - Icelandic Health Insurance (sjukra.is)

Gátlistar með umsóknum

https://www.sjukra.is/lyf-og-hjalpartaeki/hjalpartaeki/sott-um-hjalpartaeki/gatlistar-med-umsoknum/

https://www.sjukra.is/media/gatlistar-hjalpartaekja/Vorulisti-hjolastolar-og-gonguhjalpartaeki-2020-skjavaent-18122020.pdf 

Viðgerðarþjónusta

https://www.sjukra.is/lyf-og-hjalpartaeki/hjalpartaeki/um-hjalpartaeki/vidgerdir/