SenSura® Mio Click Convex plata
SenSura® Mio Convex er kúpt stómaplata sem tryggir stöðuleika í kringum inndregið stóma
og aðlagar sig að mismunandi líkamsgerð einstaklinga, þökk sé teygjanlegri plötu og poka sem ber lítið á,
því efni pokans er í gráum hlutlausum lit.
SenSura® Mio Convex plata tryggir örugga aðlögun að líkama hvers einstaklings þrátt fyrir fellingar og dældir í húð og stómíum sem þarf að þrýsta fram. SenSura® Mio Convex er lítt áberandi þökk sé mörgum nýstárlegum eiginleikum.
Kostir:
Sveigjanleiki Convex plötunnar veitir einstakan stöðugleika í kringum stómað og fylgir hreyfingum líkamans eftir
Teygjanleg plata tryggir örugga festingu þrátt fyrir mismunandi líkamsbyggingu einstaklinga
Nýr Click smellufestibúnaður veitir aukna öryggistilfinningu
SenSura® Mio Click Convex plata er hluti af samsettu kerfi plötu og poka. (2ja hluta kerfi)
Því er hægt að skipta um poka án þess að skipta um plötu.
Pokinn er festur með því að honum er smellt á plötuna og heyrist þá „ klikk “ hljóð.
Hægt er að fá breitt úrval af SenSura Mio Convex Click plötum: tvær mismunandi dýptir af skálum,
Djúp og Light með tilklipptum götum eða tilklippanlegum.
SenSura® Mio Click pokar fást í mismunandi stærðum, glærir eða í hlutlausum gráum lit, með eða án skoðunarglugga. Stærðirnar á Click hringnum eru 40, 50, 60 og 70 mm í þvermál.
Light Convex er hannað fyrir stómíur sem þarf að þrýsta fram, stómíur þar sem op stómans er í
hæð við húð og henta þar sem meðal og minni dældir eru í kringum stómasvæðið.
Djúpur Convex er hannað þar sem op stómíunnar er undir yfirborði húðar og mikil þörf fyrir stuðning
og þrýstingi til að ná stómanum fram.
Magn í pakka.
5 stk.