Kynning á Panthera hjólastólum verður haldin þriðjudaginn 3. maí kl. 9:00-12:00 fyrir sjúkra- og iðjuþjálfa og aðra sérfræðinga í velferðartækni í sýningarsal Stuðlabergs heilbrigðistækni að Stórhöfða 25, 3. hæð.
Helena Lemoine iðjuþjálfi og markaðsstjóri Panthera í Svíþjóð kynnir fjölbreytt úrval léttra handknúinna hjólastóla, stillingar og möguleika. Hún mun kynna nýjungar og hvað ber að hafa í huga við val á hjólastól fyrir mismunandi einstaklinga auk þess sem hún mun kynna aukahluti sem í boði eru.
Panthera hjólastólarnir eru í samningi við Sjúkratryggingar Íslands og henta bæði börnum og fullorðnum.
Þátttakendum gefst kostur á því að skoða og prófa vörurnar.
Boðið er upp á léttan hádegisverð.
Nánari upplýsingar veitir Jóhanna Ingólfsdóttir iðjuþjálfi í síma 569 3186 eða á netfangið johanna@stb.is
Áhugasamir vinsamlegast skrái sig fyrir lok fimmtudags 28. apríl (nafn, stafsheiti, netfang og vinnustað) á netfangið johanna@stb.is
Við hlökkum til að sjá ykkur.
Með bestu kveðju, Starfsfólk Stuðlabergs heilbrigðistækni