Það var ánægjulegt hversu margir mættu á kynningu sem var haldin fyrir sjúkra- og iðjuþjálfa á aflbúnaði á handknúna hjólastóla í Stuðlabergi heilbrigðistækni á Stórhöfðanum í lok mars. Pär Gustavsson sérfæðingur hjá fyrirtækinu Decon (www.decon.se) heimsótti okkur og kynnti vöruúrvalið frá þeim og sýndi m.a. Infinity rafknúið handhjól framan á hjólastóla. Þátttakendur voru mjög áhugasamir og fengu að skoða og prófa tækin.
Takk fyrir komuna.