Frí heimsending þegar verslað er yfir 10.000 kr. eða meira, allt að 20 kg.
Menu
Innkaupakarfa
Engar vörur í körfu.

Afgreiðslutími

Skrifstofur og sýningarsalur Stuðlabergs heilbrigðistækni ehf. að Stórhöfða 25

Opið kl. 8:30-16:00 virka daga. Senda má fyrirspurnir á stb@stb.is eða hringja í síma 569 3180. Við hvetjum viðskiptavini og gesti okkar að gera boð á undan sér svo tryggt sé að viðkomandi sérfræðingur sé til staðar þegar komið er. Bein símanúmer má finna hér.

Afgreiðsla hjúkrunar- og dagrekstrar­vöru er að Stórhöfða 25 kl. 9:00-12:00 og 12:30-16:00 virka daga.

Afgreiðsla og fræðsla er í höndum hjúkrunar­fræðinga sem hlotið hafa þjálfun til að veita persónulega og faglega þjónustu á sviði stóma- og þvagleggja. Við aðstoðum notendur að finna vörur sem henta þeim og eru í samningi Sjúkratrygginga Íslands. Vörupantanir má senda á hjukrun@stb.is eða símleiðis. Vinsamlegast gefðu upp nafn þess sem pantað er fyrir, kennitölu, hvaða vöru verið er að panta og magn. Fyllsta trúnaðar er ætíð gætt. Pantanir eru afgreiddar eins fljótt og auðið er. Sjá nánar hér.

Sýningarsalur Stuðlabergs heilbrigðistækni ehf.

Í sýningarsal Stuðlabergs á efstu hæð að Stórhöfða 25 eru til sýnis og prófunar hin ýmsu hjálpartæki og margvíslegar vörur. Við bjóðum fagfólki og skjólstæðingum þeirra velkomið í sýningarsalinn. Vinsamlegast hafið samband við söluskrifstofu Stuðlabergs heilbrigðistækni á 2. hæð ef fá þarf faglegar upplýsingar eða fræðslu um búnað. Senda má ósk um heimsókn á netfang tiltekins starfsmanns eða á netfangið stb@stb.is

Við hvetjum viðskiptavini og gesti okkar að gera boð á undan sér svo tryggt sé að viðkomandi sérfræðingur sé til staðar þegar komið er. Sjá einnig bein símanúmer hér.

Verkstæði Stuðlabergs og Eirbergs Stórhöfða 25

Þjónustusamningur er við Sjúkratryggingar Íslands. Gengið inn um aðalinngang að Stórhöfða 25 og niður í kjallara fyrir neðan verslun Eirbergs.  Næg bílastæð, ásamt stæði fyrir hreyfihamlaða. Hægt er að senda þjónustubeiðnir á hjalp@stb.is - Sími 569-3190.

Vöruhús Stuðlabergs og Eirbergs Stórhöfða 25

Vöruhús er opið kl. 8:00-17:00. Netfang: voruhus@eirberg.is - Sími: 569-3127.

Skrifstofur

Söluskrifstofur, fjármál, bókhald, innheimtur og innflutningur. Opið kl. 8:30-16:00. Netfang skrifstofu: skrifstofa@stb.is